Sigurhæðir
Hjá Sigurhæðum færð þú stuðning, ráðgjöf og meðferð á þínum eigin forsendum.
Þau taka á móti konum 18 ára og eldri í öruggu og hlýju umhverfi, þar sem þú getur fengið einstaklings- eða hópmeðferð, áfallameðferð og ráðgjöf frá sérfræðingum, lögreglu og lögfræðingum. Einnig bjóða þau upp á fræðslu um réttindi innflytjendakvenna og tryggjum túlkaþjónustu þegar þess er þörf.
Þér og aðstandendum þínum er alltaf velkomið að hafa samband, hringja eða bóka viðtal til að fá stuðning og upplýsingar.




Soroptimistaklúbbur Suðurlands er frumkvöðull að stofnun Sigurhæða. Soroptimistar eru aldargömul alþjóðleg samtök kvenna sem vinna að jafnrétti, mannréttindum, bættri stöðu kvenna og sjálfbærri þróun í heimabyggð, heimalandi og á alþjóðavettvangi. Fyrsti íslenski klúbburinn var stofnaður 1959 og eru alls 19 klúbbar núna starfandi um land allt.
Nánari upplýsingar má finna á vef Sigurhæða
Hafa samband
agm2026iceland@gmail.com